Umsókn

Lífsgæðasetur St. Jó hýsir fjölbreytta og lifandi starfsemi á sviði heilsuverndar og sköpunar í samræmi við heilsustefnu Hafnarfjarðar. Lífsgæðasetrið er opið samfélag sem býður meðal annars upp á forvarnir, heilsuvernd, snemmtæka íhlutun, fræðslu og sköpun.

Hægt er að leggja inn umsókn til að koma með starfsemi í St. Jó. Umsækjendur sem bjóða upp á hefðbundnar og óhefðbundnar meðferðir í Lífsgæðasetri St. Jó þurfa að sýna fram á viðurkennda menntun og starfsleyfi, ef við á.

Í umsókn skal gera grein fyrir eftirfarandi:

  • Kynning á umsækjanda/umsækjendum
  • Afrit af skírteinum og/eða starfsleyfi, eftir því sem við á
  • Greinargóð lýsing á hugmynd/starfsemi
  • Hvernig fellur hugmyndin að markmiðum Lífsgæðaseturs?
  • Hvaða þarfir eru um húsnæði (stærð, staðsetning, aðstaða, nýting rýma)?
  • Rekstraráætlun

Hér má finna dæmi um umsóknarform og dæmi um rekstraráætlun.

Skila skal umsóknum á netfangið [email protected]

Nánari upplýsingar

Teikningar af kortavef

Ef nánari upplýsinga er óskað þá vinsamlegast hafið samband við verkefnastjóra, Gerði Björk Guðjónsdóttur á netfangið [email protected].