Fréttir - 5. júlí 2010
Gæðahandbók skurðdeildar St Jósefsspítala
Á fundi framkvæmdastjórnar St. Jósefsspítala-Sólvangs þann 8.júní s.l. lagði undirrituð fram til skoðunar Gæðahandbók skurðdeildar.
Á undanförnum árum hafa hjúkrunarfræðingar á skurðdeild St Jósefsspítala haft þá vinnureglu að skrá verkferla allra aðgerða sem unnar eru á deildinni í „Gæðahandbók“.
Tilgangurinn með þessari „Gæðahandbók“ er að tryggja faglega vinnu, auðvelda vinnu nýrra starfsmanna og hjúkrunarnema, minnka líkur á mistökum í starfi og vera uppfléttirit við daglega vinnu. Síðast en ekki síst að þessi handbók sé opin þeim sem vilja kynna sér starfið inná skurðstofum spítalans.
Fréttir - 1. júní 2010
Vorferð
 |
Jónatan Garðarson, kynnir það sem sjá má í gönguferðinni |
Þann 8. maí s.l. skipulagði og fór starfsmannafélagið í árlega vorferð. Það þessu sinni var farið með norðurströnd Hafnarfjarðar frá sundhöllinni áleiðis að Garðakirkju.
Skoðaðar voru ýmsar göngluleiðir, sem í þann tíma voru almennar göngugötur, gömul býli og kot þar sem áður bjó fjöldi fólks og háði sína lífsbaráttu við þröngan kost. Þetta fólk réri til fiskjar og verkaði fisk á ströndinni við frumstæð skilyrði.
Ferðin tók um það bil tvo tíma og leiðsögumaður var Jónatan Garðarsson, sem oft hefur verið með í þessum ferðum og er ákaflega fróður um margt sem að eldri lifnararháttum snýr. Við kunnum honum bestu þakkir fyrir að vilja slást í hópinn okkar og fræða okkur um lífið í Hafnarfirði á fyrri öldum.
Fréttir - 1. júní 2010
Fundur - kynning LSH
Á morgun 2. júní verður haldinn fundur í fundarsal Sólvangs klukkan 15.30.
Á fundinn koma fulltrúar frá Landspítala (LSH) og kynna fyrirhugaða nýbyggingu sem reisa á við Hringbraut í Reykjavík (neðan Hringrautar þar sem nú er "Tanngarður" hús Tannlæknadeildar Háskóla Íslands).
Dagskrá fundarins er:
15:30-16:00 Kynning fulltrúa LSH
16:00-16:30 Fyrirspurnir og umræður
Fundurinn er ætlaður starfsmönnum St Jósefsspítala-Sólvangs, þingmönnum Suðvestur-kjördæmis og fulltrúum frá pólitískum samtökum um sveitarstjórnarmál Hafnarfjarðar og öðrum sem áhuga hafa á heilbrigðismálum í Hafnarfirði.
Framkvæmdastjórn St Jósefsspítala-Sólvangs