Minnsta leturgerð
Miðstærð leturgerðar
Stærsta leturgerð
Hafa samband
Forsíða
Prenta
Leita

5. júl. 2010
Gæðahandbók skurðdeildar St Jósefsspítala

Á fundi framkvæmdastjórnar St. Jósefsspítala-Sólvangs þann 8.júní s.l. lagði undirrituð fram til skoðunar Gæðahandbók skurðdeildar.

 

Á undanförnum árum hafa hjúkrunarfræðingar á skurðdeild St Jósefsspítala haft þá vinnureglu að skrá verkferla allra aðgerða sem unnar eru á deildinni í „Gæðahandbók“.

 

Tilgangurinn með þessari „Gæðahandbók“ er að tryggja faglega vinnu, auðvelda vinnu nýrra starfsmanna og hjúkrunarnema, minnka líkur á mistökum í starfi og vera uppfléttirit við daglega vinnu.  Síðast en ekki síst að þessi handbók sé opin þeim sem vilja kynna sér starfið inná skurðstofum spítalans. 

1. jún. 2010
Vorferð

Jónatan Garðarson, kynnir það sem  sjá má í gönguferðinni
Þann 8. maí s.l. skipulagði og fór starfsmannafélagið í árlega vorferð. Það þessu sinni var farið með norðurströnd Hafnarfjarðar frá sundhöllinni áleiðis að Garðakirkju.

 

Skoðaðar voru ýmsar göngluleiðir, sem í þann tíma voru almennar göngugötur, gömul býli og kot þar  sem áður  bjó fjöldi fólks og háði sína lífsbaráttu við þröngan kost. Þetta fólk réri til fiskjar og verkaði fisk á ströndinni við frumstæð skilyrði. 

 

Ferðin tók um það bil tvo tíma og leiðsögumaður var Jónatan Garðarsson, sem oft hefur verið með í þessum ferðum og er ákaflega fróður um margt sem að eldri lifnararháttum snýr.  Við kunnum honum bestu þakkir fyrir að vilja slást í hópinn okkar og fræða okkur um lífið í Hafnarfirði á fyrri öldum.