Minnsta leturgerð
Miðstærð leturgerðar
Stærsta leturgerð
Hafa samband
Forsíða
Prenta
Leita
Fréttir - 5. júlí 2010

Gæðahandbók skurðdeildar St Jósefsspítala

Á fundi framkvæmdastjórnar St. Jósefsspítala-Sólvangs þann 8.júní s.l. lagði undirrituð fram til skoðunar Gæðahandbók skurðdeildar.

 

Á undanförnum árum hafa hjúkrunarfræðingar á skurðdeild St Jósefsspítala haft þá vinnureglu að skrá verkferla allra aðgerða sem unnar eru á deildinni í „Gæðahandbók“.

 

Tilgangurinn með þessari „Gæðahandbók“ er að tryggja faglega vinnu, auðvelda vinnu nýrra starfsmanna og hjúkrunarnema, minnka líkur á mistökum í starfi og vera uppfléttirit við daglega vinnu.  Síðast en ekki síst að þessi handbók sé opin þeim sem vilja kynna sér starfið inná skurðstofum spítalans. 

Fréttir - 1. júní 2010

Vorferð

Jónatan Garðarson, kynnir það sem  sjá má í gönguferðinni
Þann 8. maí s.l. skipulagði og fór starfsmannafélagið í árlega vorferð. Það þessu sinni var farið með norðurströnd Hafnarfjarðar frá sundhöllinni áleiðis að Garðakirkju.

 

Skoðaðar voru ýmsar göngluleiðir, sem í þann tíma voru almennar göngugötur, gömul býli og kot þar  sem áður  bjó fjöldi fólks og háði sína lífsbaráttu við þröngan kost. Þetta fólk réri til fiskjar og verkaði fisk á ströndinni við frumstæð skilyrði. 

 

Ferðin tók um það bil tvo tíma og leiðsögumaður var Jónatan Garðarsson, sem oft hefur verið með í þessum ferðum og er ákaflega fróður um margt sem að eldri lifnararháttum snýr.  Við kunnum honum bestu þakkir fyrir að vilja slást í hópinn okkar og fræða okkur um lífið í Hafnarfirði á fyrri öldum.

Fréttir - 1. júní 2010

Fundur - kynning LSH

Á morgun 2.  júní verður haldinn fundur í fundarsal Sólvangs klukkan 15.30.

 

Á fundinn koma fulltrúar frá Landspítala (LSH) og kynna fyrirhugaða nýbyggingu sem reisa á við Hringbraut í Reykjavík (neðan Hringrautar þar sem nú er "Tanngarður" hús Tannlæknadeildar Háskóla Íslands).

 

Dagskrá fundarins er:

15:30-16:00  Kynning fulltrúa LSH

16:00-16:30  Fyrirspurnir og umræður

 

Fundurinn er ætlaður starfsmönnum St Jósefsspítala-Sólvangs, þingmönnum Suðvestur-kjördæmis og fulltrúum frá pólitískum samtökum um sveitarstjórnarmál Hafnarfjarðar og öðrum sem áhuga hafa á heilbrigðismálum í Hafnarfirði.

Framkvæmdastjórn St Jósefsspítala-Sólvangs

 

Viltu gerast áskrifandi?

 

St. Jósefsspítali-Sólvangur

Suðurgötu 41

220 Hafnarfirði

Símar 555 0000;
590 6500

Fax 565 3255;
590 6501
Skiptiborðið opið:
08-17 mán-fimmtd
08-16:30 föstud

stjo@stjo.is

www.stjo.is

www.solvangur.is